Minni pappírsvinna.
Meiri tími fyrir reksturinn.
Skrifstofuaðstoð fyrir lítil fyrirtæki – á íslensku.
Viðskiptastofan útbýr reikninga, semur svör við tölvupósti og flokkar útgjöld. Hún gerir uppkastið – þú tekur ákvörðunina.
- Allt á íslensku
- Ekkert sent sjálfkrafa
- Reikningar sem PDF
Ég bjó til uppkast að reikningi. Hann bíður samþykkis þíns.
Það sem tekur tíma – gert einfalt
Fjögur verkfæri fyrir daglega skrifstofuvinnu lítilla fyrirtækja.
Reikningar á mínútu
Lýstu verkinu með eigin orðum. Viðskiptastofan býr til reikningsuppkast með VSK, eindaga og reikningsnúmeri – tilbúið til yfirlestrar og PDF-útflutnings.
Svör við tölvupósti
Límdu inn fyrirspurn eða bókunarbeiðni og fáðu vandað svar á íslensku – formlegt eða vinalegt. Ekkert er sent fyrr en þú gerir það sjálf(ur).
Útgjöld og VSK
Hladdu upp mynd eða PDF af kvittun (eða límdu textann) og fáðu flokk og VSK-upphæð. Útgjöldin safnast í lista og mynda VSK-uppkast sem þú ferð yfir.
Verkefnalisti
Allt sem bíður samþykkis þíns birtist í verkefnalistanum – svo ekkert gleymist í önnum dagsins.
Hvernig það virkar
Segðu hvað þarf að gera
Skrifaðu eða límdu inn – á venjulegri íslensku, eins og þú myndir segja það við samstarfsmann.
Fáðu uppkast
Viðskiptastofan útbýr skipulagt uppkast. Allt sem snertir peninga er merkt „Uppkast – þarf samþykki“.
Farðu yfir og samþykktu
Breyttu því sem þarf, ýttu á „Samþykkja“ og sæktu PDF eða afritaðu textann.
Þú hefur alltaf síðasta orðið
Gervigreind getur gert mistök. Þess vegna er allt sem snertir peninga eða skil til yfirvalda uppkast þar til þú samþykkir það.
Uppkast fyrst
Reikningar, útgjöld og VSK-yfirlit eru merkt „Uppkast – þarf samþykki“.
Ekkert sent sjálfkrafa
Reikningur fer aðeins í tölvupósti þegar þú ýtir sjálf(ur) á „Senda“. Svör við tölvupósti afritar þú sjálf(ur).
Skýr saga
Samþykki er skráð og hægt er að opna uppkast aftur til breytinga.
Verð
Allir byrja á fríri prófun í 14 daga – án greiðslukorts og án skuldbindingar. Síðan velur þú pakka sem hentar.
Frí prófun
14 dagar án skuldbindingar
0 kr.
í 14 daga
- Allir helstu eiginleikar
- Takmörkuð notkun gervigreindar
- Engin greiðsla – engin skuldbinding
Grunnur
Fyrir einyrkja og lítil fyrirtæki
2.900 kr.
á mánuði án VSK (3.596 kr. með VSK)
eða 29.000 kr. á ári án VSK – 2 mánuðir fríir
- 1 notandi
- Reikningar, útgjöld og VSK-uppkast
- Svör við tölvupósti
- Allt að 30 gervigreindarköll á dag
- Allt að 50 reikningsuppkast á mánuði
Fyrirtæki
Fyrir fyrirtæki með meiri umsvif
6.900 kr.
á mánuði án VSK (8.556 kr. með VSK)
eða 69.000 kr. á ári án VSK – 2 mánuðir fríir
- Allt að 5 notendur innifaldir (viðbótarnotandi 1.500 kr. á mánuði)
- Allt í Grunni
- Sameiginleg gervigreindarmörk: allt að 300 köll á dag fyrir allt fyrirtækið (sanngirnismörk 150 á notanda)
- Ótakmörkuð reikningsuppkast
Öll verð eru í íslenskum krónum án VSK (24%). Áskrift er greidd með reikningi. Þú getur sagt upp hvenær sem er og aðgangurinn helst út greitt tímabil.
Á döfinni
Viðskiptastofan er í virkri þróun. Eftirfarandi er ekki komið enn – þetta er áætlun um framhaldið.
Bein tenging við bókhaldskerfi
Útflutningur fyrir DK og Reglu er kominn. Bein tenging við Payday er í prófun, svo reikningar og útgjöld flæði beint.
Á döfinniInnskráning með Auðkenni
Örugg rafræn skilríki sem viðbót við netfang og lykilorð.
Á döfinniSkil til Skattsins
VSK-yfirlitið er komið. Bein skil á VSK-skýrslu bíða aðgangs að vefþjónustu Skattsins – þú samþykkir alltaf áður en nokkuð er sent.
Á döfinniRafrænir reikningar (XML)
Sending rafrænna reikninga í skeytamiðlun til fyrirtækja og stofnana.
Á döfinniÍslensk hýsing gagna
Færsla gagnagrunns í íslenskt hýsingarumhverfi.
Á döfinniSjáðu þetta með eigin augum
Demo-fyrirtækið „Hringurinn ehf.“ er tilbúið með dæmigögnum – einkasandkassi fyrir hverja heimsókn.